Upplýsingar
Afhending
Afhending eftir samkomulagi
Stærð
78 m²
Tegund
Verslunarrými
Heimilisfang
Krossmói 4, 260 Reykjanesbær
78 fm verslunarrými við Krossmóa – Frábær staðsetning í hjarta Reykjanesbæjar Til leigu er 78 fm verslunarrými, ásamt hlutdeild í sameign, í verslunarmiðstöðinni Krossmóa, sem er ein af þekktustu verslunarkjörnum Reykjanesbæjar. Krossmói hefur að geyma öflugt úrval verslunar- og þjónustufyrirtækja sem mynda sterka heild og laða að sér stöðugan straum viðskiptavina. Miðstöðin nýtur einstaklega góðrar staðsetningar, mikils sýnileika og auðvelds aðgengis með góðum bílastæðum, sem gerir hana að eftirsóttum stað fyrir rekstur. Hið 78 fm verslunarrými býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika og hentar jafnt fyrir verslun, þjónustu eða aðra sambærilega starfsemi. Rýmið er staðsett í rótgrónu verslunarumhverfi þar sem samlegðaráhrif öflugra rekstraraðila skapa traustan grunn fyrir farsælan rekstur. Þetta er einstakt tækifæri fyrir fyrirtæki sem vilja tryggja sér húsnæði á áberandi stað í öflugum verslunarkjarna í Reykjanesbæ.
Um eignina
Þetta rými er hluti af Krossmói 4 , Krossmói 4.